- Nemendur eiga að vera stundvísir.
- Nemendur eiga að ganga vel um skólann. Ef nemandi er staðinn að óviðunandi umgengni eru foreldrar eða forsjáraðilar hans skaðabótaskyldir.
- Tilkynna skal forföll með eins góðum fyrirvara og hægt er.
- Ef kennari veikist er alltaf reynt að ná sambandi við foreldra. Ef kennari er veikur lengur en eina viku er reynt að útvega forfallakennara.
- Ætlast er til að nemendur fari úr skóm og yfirhöfnum í anddyri skólans. Gæta skal þess að skilja ekki eftir verðmæti í yfirhöfnunum.
- Nemendur mega ekki vera á kennaragangi, kennarastofunni og bókasafni nema með leyfi og undir eftirliti kennara.
- Vilji nemandi koma fram utan skólans er sjálfgefið að hann hafi samráð við kennara sinn.
- Foreldrar leggja sjálfir mat á hvort þeir sendi börn sín í skólann eða ekki í slæmu veðri, alveg eins og í grunnskólum. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins gefur út tilmæli vegna veðurs og röskunar á skólastarfi.