Gítar

Klassískur gítar er frábært hljóðfæri til að spila á í einleik eða kammertónlist. Hann passar fallega við önnur hljóðfæri eins og flautu eða fiðlu og er einstaklega góður til að fylgja mannsröddinni.

Aldur

Hægt er að hefja nám á gítar frá 7 ára aldri. Það er þó alltaf matsatriði og fer eftir stærð nemanda og þroska.

Samspil

Nemendur geta tekið þátt í hljómsveitum og öðrum samleikshópum ef þeir vilja. Það er ekki skylda en æskilegt er að hafa reynslu í samleik meðfram náminu.

Hljóðfæri

Nauðsynlegt er að nemandi eigi klassískan gítar og eignist nótnabækur og nótnastand. Best er að hafa samráð við kennarann varðandi kaup á gítar.

Heimanám

Nám í tónlistarskóla er að stórum hluta byggt á heimanámi. Æfa þarf daglega en lengd æfingatíma er í samráði við kennara. Mikilvægt er að nemandinn geti æft sig í ró og næði.